Í gær skellti ég og Robbi okkur í dagsferð til
grænlands sem var mikil upplifun og mjög gaman. Ekkert smá
skrýtið að sjá hvað þetta er rosalega ólíkt íslandi, samt svona
stutt frá. byrjuðum á að fljúga þangað síðan var rölt um kulusuk
og skoðað síðan var okkur sýnt hvernig grænlendingar veiða
seli á kajak og einnig var okkur synt grænlenskur dans sem var
bara fyndið. Ég var ekkert smá vinsæl af litlu stelpunum þarna
hehe útaf ljósahárinu ein sat í fanginu á mér og var alltaf að
knúsa mig og eitthvað ýkt sætt.
Fengum rosa gott veður
heiðskírt og sól samt bara 5 stiga hiti en samt fann maður
ekkert geggjað fyrir kuldanum. Set kannski inn myndir einhvern
tíman Robbi var rosa duglegur á myndavélinni 
en hvað er planið um verslunarmannahelgina?
Ég og Robbi ætlum bara að fara með mömmu minni og
pabbi í útileigu, veiða og slappa af bara ýkt næs nennum ekkert að
fara neitt.. erum líka að fara út í 2 vikur í enda águst þegar ég
er búin með sumarprófið mitt þannig að maður er ekkert að tíma að
fara neitt þetta ár. Nægir mér alveg að hafa farið til eyja í
fyrra.
en núna er bara vinnuhelgi arg.. er að vinna hálf
12 til hálf 12 föst laug og sunnudag í þessu góða veðri arg... ekki
gaman en svona er þetta..er reyndar líka að fara að vinna föst og
laug næstu helgi en er síðan komin í viku fríi ... ahh
og 3 águst
er ég að fara með vinnunni til hafnar í snjósleða ferð.
11 júli fórum við til sauðakrókar á hestbak og
river rafting sem var bara snilld.. nema það að ég datt úr bátnum
og sigldi með ánni ég sver ég hélt að ég væri að fara að deyja
shitt.. horfði bara á alla fjarlægast mig.. en dauðlangar í
river rafting aftur!
kostur við að vinna hérna maður fær þetta allt
frítt af því að við erum að selja þessa ferðir þá er okkur boðið að
fara í eins margar ferðir og við viljum og allt frítt. eins og með
grænland þá fékk ég frítt og Robbi fékk maka miða sem er bara
flugvallaskattarnir fáum einnig frímiða til útlanda í enda águst
heavy nice miklu ódýrar fyrir okkur út
fáum afslátt hja úrval
útsýn 
en langar í sólbað 
kv
Kristin
PS! íbúðin var ekki seld
gellan hætti við að kaupa hana 